Matadi er hafnarborg
í ósum Kongófljótsins í grennd við landamærin að Angóla.
Um hana liggur járnbraut til Kinshasa.
Mestur útflutningur landsins nema málmar og efni frá Shaba-héraði
fer um höfnina, enda er hún meðal allrastærstu hafna í Mið-Afríku.
Talsvert er framleitt af lyfjum í borginni.
Áætlaður íbúafjöldi 1991 var 173 þúsund. |