Kolwezi er borg í
Saharahéraði í Suðaustur-Kongó.
Um hana liggur Benguela-járnbrautin og hún er miðstöð stórs
kopar- og kóbaltnámuhéraðs. Þar
finnst einnig úran, radíum, oxíð og kalk.
Í borginni er koparinn og kóbaltið hálfunnið áður en það
er sent áfram með lestum til frekari vinnslu í Likasi.
Kolwezi er einnig viðskiptamiðstöð fyrir umliggjandi landbúnaðarsvæði.
Áætlaður íbúafjöldi 1985 var 384 þúsund. |