Tamale er höfuðstaður
Norðurhéraðs í Ghana. Íbúar
nærliggjandi steppusvæða stunda aðallega ræktun nautgripa og baðmullar.
Borgin, sem er miðstöð verzlunar við mót þjóðvega og
vinnslu baðmullar og jarðhnetna, selur einnig talsvert af bastmunum.
Tamale er setur tveggja ríkisrekinna kennaraskóla og tækniskóla.
Bretar stofnuðu bæinn snemma á 19. öld sem stjórnsýslumiðstöð
fyrir Norðurhéruðin, sem voru verndarsvæði Gullstrandarnýlendunnar.
Áætlaður íbúafjöldi 1988 var 151 þúsund. |