Kilimanjaro í Tanzaníu, 5895 m.
Nær yfir þrjú eldfjöll, sem hafa ekki gosið á sögulegum tíma
(Kibo, Mawensi og Shira).
Kamerún
í Kamerún, 4100 m.
Fyrsta skráða gos 1650.
Í gosinu 1982 urðu rúmlega 300 íbúar í nágrenni þess að
flýja heimili sín.
Teide
(mynd) á Tenerife á Kanaríeyjum, 3718 m.
Gosið 1705 gróf bæinn Barachico undir ösku og fyllti höfn
hans.
Nyiragongo
í Saír, 3475 m.
Fyrsta sögulega gos 1884.
Gaus hér um bil óslitið á árabilinu 1928-1977.
Nyamulagira
í Saír, 3055 m.
Fyrsta skráð gos 1882.
Stærsti hraunstraumurinn í gosinu 1982 fór yfir 13 km langt skóglendi.
Fogo
á Kapverdeeyjum, 2829 m.
Fyrsta skráða gos 1500.
Karthala
á Komoroseyjum, 2361 m.
Fyrsta skráða gos 1828.
Fournaise
á Reunioneyjum, 1823 m.
Fyrsta skráða gos 1640.
Það stóð óslitið í nærri 10 ár.
Erta-Ale
í Eþíópíu, 503 m.
Fyrsta skráða gos 1873.
Fjallið gaus næstum óslitið 1967-80. |